technogym.is
Excite+ Live 9000
Excite+ Live 9000
Couldn't load pickup availability
Öflugt, stöðugt, mjúkt, og áreiðanlegt. Excite+ Live 9000 gerir allt sem gott hlaupabretti á að gera, og gerir það vel. Brettið fer í 25 km/klst og 18% halla, er með flýtistýringum á hraða og halla sem nýtist frábærlega í interval þjálfun. Stýripinnar til að auka og minnka hraða og halla gerir auðveldara að fínstilla æfinguna þina.
Glæsilegur 22" snertiskjárinn býður þér alls kyns æfinga- og afþreyingarmöguleika, þráðlaus hleðsla farsíma, auðvelt bluetooth tenging við heyrnatól og púlsmæli gerir þér auðeldara að fylgjast með þróun æfinga og framförum í formi.
Þó Excite+ brettin séu hönnuð fyrir líkamsræktarstöðvar eru þau góður valkostur fyrir þá sem vilja fyrsta flokks hlaupabretti í heimaræktina, því hönnunin er fáguð og línurnar stílhreinar, hlaupaflöturinn er með því mesta sem gerist þó flatarmál brettisins sé með því nettasta, vegna stöðu mótorsins undir brettinu (en ekki framan við það).
Excite+ er líklega áreiðanlegasta hlaupabretti sem framleitt er í dag. Afar einfalt í viðhaldi, mótor sem endist og endist gerir það að draumabretti tæknistjórans. Það er ekki að ástæðulausu að þetta er brettið sem er langmest notað í Sporthúsinu Kópavogi og Reykjanesbæ!
